Nóvember býður upp á gott tilefni til að beina sjónum
að tungumálinu og réttinum til að láta rödd sína heyrast.
Þann 16. nóvember er dagur íslenskrar tungu og
20. nóvember er dagur mannréttinda barna.
Þessir dagar eiga fleira sameiginlegt en kann að virðast við fyrstu sýn. Tungumálið gefur okkur orð til að tjá hugsanir, hugmyndir og tilfinningar og Barnasáttmálinn minnir á rétt barna til að segja skoðun sína og að á þau sé hlustað.
Þema nóvembermánaðar býður því upp á fjölbreytta vinnu með íslenska tungu, sköpun, tjáningu, réttindi, jafnrétti, virðingu og þátttöku.
Dagur íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu er haldinn 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Dagurinn gefur tilefni til að vekja athygli á fjölbreytileika íslenskunnar, sköpunarkrafti hennar og þróun.
Jónas Hallgrímsson var skáld, náttúrufræðingur og þýðandi sem hafði mikil áhrif á íslenskt mál. Við þýðingar og skrif um náttúruvísindi þurfti hann oft að finna íslensk orð yfir hugtök sem áttu sér ekki íslensk heiti.
Mörg orð sem rakin eru til Jónasar eru enn hluti af daglegu máli, meðal annars aðdráttarafl, himingeimur, sjónauki, sólmyrkvi og sporbaugur. Nýyrðasmíð hans sýnir vel hvernig tungumál getur þróast og aðlagast nýjum hugmyndum og breyttum heimi.
Dagur íslenskrar tungu gefur því ekki aðeins tilefni til að horfa til fortíðar heldur líka til að leika sér með tungumálið, skapa ný orð og velta fyrir sér hvernig íslenskan þróast áfram.
Hugmyndir að verkefnum
-
rætt hvers vegna mikilvægt getur verið að eiga íslensk orð yfir ný fyrirbæri. Hvað heita til dæmis emoji, podcast, selfie, drone og streaming á íslensku?
Hvaða orð nota nemendur sjálf og geta þau fundið upp ný orð sem þeim finnst lýsandi og skemmtileg? -
leitað að nýyrðum sem þau nota í daglegu lífi
-
búið til sín eigin nýyrði
-
valið uppáhaldsorð á íslensku og útskýrt valið
-
skoðað hvernig orð myndast og breytast
-
unnið með ljóð, hrynjandi, rím og skapandi skrif
Ljóðaflóð
Í tilefni af degi íslenskrar tungu efnir Miðstöð menntunar og skólaþjónustu til ljóðasamkeppninnar Ljóðaflóð í samstarfi við KrakkaRÚV. Kennarar eru hvattir til að hjálpa nemendum að virkja sköpunarkraftinn og senda inn ljóð á fjölbreyttu formi.
Dómnefnd velur ljóð á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi. Vinningshafar fá viðurkenningu og bókaverðlaun og tækifæri til að flytja ljóð sín á KrakkaRÚV.
Til að undirbúa nemendur fyrir þátttöku er tilvalið að lesa ljóð og ræða upplifun, innihald og mismunandi ljóðform. Á Ritunarvefnum má finna margs konar fróðleik um ljóð ásamt fræðslu- og hvatningarmyndböndum um skapandi skrif. Á safnvefnum Dagur íslenskrar tungu má nálgast stuttar og hnitmiðaðar leiðbeiningar um bragfræði. Einnig má nýta bækurnar Bragfræði og Limrur fyrir unglingastig.
Umfjöllunarefni ljóðanna er frjálst og þau geta fjallað um allt það sem brennur á nemendum.
Mikilvægt er að merkja ljóðin með nafni höfundar, bekk og skóla. Ljóðin má senda rafrænt í keppnina á netfangið ljodaflod@mms.is
Úrslit keppninnar verða tilkynnt í janúar 2027, bæði á vefmiðlum MMS og á KrakkaRÚV þar sem vinningsljóðin verða flutt.
Dagur mannréttinda barna
Dagur mannréttinda barna er haldinn 20. nóvember ár hvert. Þann dag árið 1989 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna Barnasáttmálann, alþjóðlegan samning um réttindi barna.
Barnasáttmálinn byggir á því að börn séu sjálfstæðir einstaklingar með eigin réttindi. Þar er meðal annars lögð áhersla á rétt barna til öryggis, menntunar, heilbrigðis, hvíldar og leikja, jafnræðis og verndar gegn mismunun.
Eitt af lykilatriðum sáttmálans er réttur barna til að tjá skoðanir sínar í málum sem þau varða og að tekið sé tillit til þeirra eftir aldri og þroska.
Hér mætast þemu nóvembermánaðar vel:
Við þurfum orð til að tjá það sem okkur finnst og við eigum rétt á að rödd okkar fái að heyrast.
Hugmyndir að verkefnum
Nemendur geta til dæmis:
-
-
skoðað Barnasáttmálann og valið þau réttindi sem þeim finnst mikilvægust
-
búið til réttindatré með orðum og myndum
-
rætt hvað það þýðir að hlusta á skoðanir annarra
-
unnið með aðstæður þar sem réttindi barna eru ekki virt eða ólík sjónarmið rekast á
-
útbúið bekkjasáttmála um virðingu og þátttöku
-
skrifað eða teiknað svar við spurningunni: Hvaða réttindi finnst mér mikilvægust og hvernig get ég hjálpað öðrum að njóta þeirra?
-
Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi um námsefni tengt degi mannréttinda barna: