Fara á efnissvæði
Verður heimurinn betri?
Veldu útgáfu
Samfélagsgreinar

Verður heimurinn betri?

Í bókinni er fjallað um þróun heimsins á undanförnum áratugum með stuðningi nýrra staðtölna. Þrátt fyrir stríð, loftslagsvanda og heimsfaraldra hafa lífskjör, heilsa og menntun batnað víða um heim og ójöfnuður minnkað. Bókin sýnir að framfarir eru mögulegar og að lausnir eru til staðar.Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun eru kynnt sem leiðarvísir að betri framtíð fyrir fólk og jörðina til ársins 2030. Með aukinni þekkingu á áskorunum samtímans skapast grundvöllur fyrir aðgerðir og raunverulegar breytingar.
Bókin er unnin að frumkvæði Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) og kemur nú út á íslensku í þriðja sinn. Íslensk útgáfa bókarinnar er í umsjón Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og nýtur útgáfan stuðnings utanríkisráðuneytisins. Nálgast má nánari upplýsingar um bókina og efni hennar hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna, felag@un.is.

Höfundur

Hanna Kristín Þorgrímsdóttir

Þýðandi

María Rún Þorsteinsdóttir

Myndhöfundur

Bergrún Íris Sævarsdóttir

Skólastig

Unglingastig

Vörunúmer

40083

Útgáfuár

2025