Unglingastig
Samfélagsgreinar
Kynlíf
Þetta blað fjallar um kynlíf í víðustu merkingu – kynhvöt, sjálfsfróun, líkama, tilfinningar, kynörvun, fullnægingu, kynhneigð, sambönd, samfarir og smokka. Markmiðið er að nemendur geti skoðað sig sjálf og hugmyndir sínar um kynlíf, tilfinningar og samskipti. Blaðið setur tilfinningar á dagskrá – ótta, reiði, ást, höfnun og skapsveiflur – og veltir fyrir sér skilaboðum samfélagsins um kynlíf. Það hjálpar unglingum að svara spurningum eins og: Hvað finnst mér um sjálfsfróun og samfarir? Hvernig veit ég hvaða kyn kynhvöt mín beinist að? Af hverju óttumst við höfnun? Skiptir stærð eða útlit máli? Blaðið á að vekja til umhugsunar, svara spurningum tengdum kynþroska og hvetja til að kynnast líkama sínum, til að stuðla að heilbrigðu og ánægjulegu kynlífi í framtíðinni.
Höfundar
Ásdís Olsen, Halldór Baldursson, Karl Ágúst Úlfsson
Skólastig
Unglingastig
Vörunúmer
6562
Útgáfuár
2026
Lengd
84 bls.