Miðstig
Samfélagsgreinar
Réttindasmiðjan
Réttindasmiðjan er námsefni um mannréttindi. Þar er fjallað um mannréttindi, jafnrétti, fordóma, mikilvægi menntunar og sjálfsmynd, auk réttinda barna samkvæmt Barnasáttmálanum, skoðuð út frá mismunandi sjónarhorni. Einnig eru Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna kynnt og sett í samhengi við mannréttindi. Í efninu er lögð áhersla á skapandi verkefni og að nemendur læri að setja sig í spor annarra. Allt námsefnið tengist hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Með því kynnast nemendur réttindum sínum samkvæmt Barnasáttmálanum og hvernig þau tengjast daglegu lífi þeirra.
Höfundur
Hanna Borg Jónsdóttir
Skólastig
Miðstig
Vörunúmer
40756
Útgáfuár
2024