Miðstig
Samfélagsgreinar
Ég, þú og við öll
Kennsluleiðbeiningar með bókinni Ég, þú og við öll - Sögur og staðreyndir um jafnrétti.
Í bókinni er boðið upp á eins konar ferðalag til þess að kynnast ýmsum hliðum jafnréttis, svo sem kynjajafnrétti. jafnrétti óháð kynhneigð, milli fatlaðra og ófatlaðra, milli fólks með ólíkan húðlit. tungumál og uppruna.Í þessum kennsluleiðbeiningum er ýmist stutt umfjöllun um hvern kafla nemendabókar eða nokkra skylda kafla. Síðan koma hugmyndir að verkefnum sem tengjast kaflanum eða köflunum þar sem reynt er að hafa fjölbreytni í fyrirrúmi. Loks er bent á heimildir sem tengjast efninu hverju sinni. Í möppunni Jafnrétti by Kolbrun Bjornsdottir á YouTube er að finna efni sem mætti bæði nýta við kennsluna og eins ítarefni sem gæti verið áhugavert fyrir kennarana sjálfa. Þeir sem hafa ekki aðgang að slíkum tækjabúnaði eða eiga ekki kost á niðurhlaði ættu að geta nýtt sér útprentanir, bækur, fjölmiðla
o.fl. Í samvinnu við bókasafnsfræðing er hægt að velja bækur sem falla að umræðuefni námsbókarinnar, til að lesa fyrir nemendur eða mæla með við þá.
Hafa ber í huga að í nemendahópnum gætu verið nemendur sem hafa upplifað réttindabrot á mjög áhrifaríkan hátt. Taka verður tillit til óska þeirra við vinnuna.

Höfundar
Fatima Hossaini, Kolbrún Anna Björnsdóttir
Skólastig
Miðstig
Vörunúmer
8946
Útgáfuár
2013