Námsefnisvefur Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu hefur verið endurnýjaður með það að markmiði að gera námsefni MMS aðgengilegra fyrir kennara, nemendur, foreldra og aðra notendur. Á vefnum er auðvelt að finna námsefni og fá góða yfirsýn yfir útgáfu MMS.
Á vefnum geturðu leitað að efni eftir námsgrein, aldursstigi og efnisflokkum. Þú sérð í fljótu bragði hvaða verkefni, hljóðefni, kennsluleiðbeiningar og annað fylgja hverjum titli og færð ábendingar um annað tengt námsefni.
Ein nýjungin er þemasíður sem fylgja skólaárinu. Þar er safnað saman námsefni, hugmyndum og fróðleik sem tengist árstíðum, merkisdögum og fjölbreyttum viðfangsefnum. Jafnframt vekjum við reglulega athygli á bæði nýju og eldra námsefni sem á fullt erindi í skólastarfi.
Vefurinn mun þróast áfram í samstarfi við kennara og skólasamfélagið. Við viljum gjarnan heyra frá þér ef þú ert með hugmyndir eða ábendingar postur@midstodmenntunar.is.