Fara á efnissvæði
Sögugáttin - Tækni og framfarir
Veldu útgáfu
Miðstig
Unglingastig
Samfélagsgreinar

Sögugáttin - Tækni og framfarir

Tækni og framfarir er þemahefti í sögu í bókaflokknum Sögugáttin. Bókin segir sögu tækniþróunar á Vesturlöndum á 20. öld. Stórfelldar framfarir urðu á stuttum tíma til dæmis í samgöngum. Ýmsar tækninýjungar tengjast styrjöldum aldarinnar og fjallað er um upphaf geimferða og langvarandi kalt stríð. Gerviefni eru fundin upp og rafmagn leitt inn á hvert heimili. Læknisfræðin tekur stórstígum framförum og mikilvæg heimilistæki líta dagsins ljós. Í lokin er sagt frá byltingu í samskiptum og nýrri tækniþróun sem enginn veit hvernig endar. Í bókinni eru fjölbreytt verkefni sem hugsuð eru sem æfing í frekari heimildavinnu.

Höfundar

Ívar Örn Reynisson, Sigrún Elíasdóttir, Böðvar Leós

Skólastig

Miðstig Unglingastig

Vörunúmer

7134

Útgáfuár

2015

Lengd

32 bls.