Miðstig
Unglingastig
Samfélagsgreinar
Sögugáttin - Rokk og róttækni
Rokk og róttækni er þemahefti í sögu í bókaflokknum Sögugáttin. Bókin er saga´68 kynslóðinnar. Það er sagt frá því þegar ungt fólk kom fyrst fram sem samstæður hópur með eigin menningu og báráttumál. Unglingamenningin hófst með tilkomu rokksins en fjörugur taktur þess bar vott um lífsfjör og sjálfstæðisþörf æskunnar. Kynslóðabilið jókst og unga fólkið tók að mótmæla ýmsu sem því þótti miður fara í samfélaginu. Baráttan náði hámarki með stúdentauppreisninni í París árið 1968. Æskan vildi ekki láta segja sér fyrir verkum og sumir gerðust hippar og reyndu sem mest að lifa fyrir utan hefðbundið samfélag. Æskulýðsróttæknin leiddi af sér frjálslyndara samfélag sem kom meðal annars fram í auknum réttindum kvenna og samkynhneigðra. Í bókinni eru fjölbreytt verkefni sem hugsuð eru sem æfing í frekari heimildavinnu.
Höfundur
Leifur Reynisson
Skólastig
Miðstig Unglingastig
Vörunúmer
7370
Útgáfuár
2014
Lengd
32 bls.