Miðstig
Unglingastig
Samfélagsgreinar
Sögugáttin - Fyrstu samfélög
Fyrstu samfélög er þemahefti í sögu í bókaflokknum Sögugáttin. Bókin segir frá því hvernig menn námu land vítt og breitt um heiminn. Hvernig dreifð búseta safnara og veiðimanna þróaðist og fólkið tók að setjast að við fljótin og rækta landið. Smám saman byggðust síðan upp þorp og bæir, menningin breyttist og sérhæfðum störfum fjölgaði. Fjallað er um fyrstu og stærstu fljótasamfélögin, Mesópótamíu, Indus, Egyptaland og Kína. Í Suður-Ameríku voru Olmekar fyrsta menningarþjóðin sem settist að við Mexíkóflóa. Einnig er stuttlega fjallað um íþróttaiðkun, þróun ritlistar og trúarbrögð. Í bókinni eru fjölbreytt verkefni sem hugsuð eru sem æfing í frekari heimildavinnu.
Höfundar
Drífa Þöll Arnardóttir, Jóhanna Ýr Jónsdóttir, Freydís Kristjánsdóttir
Skólastig
Miðstig Unglingastig
Vörunúmer
7077
Útgáfuár
2015
Lengd
32 bls.