Miðstig
Danska
Start
Leikjavefurinn er gagnvirk viðbót við námsefnið Start og styður við þjálfun í orðaforða, lesskilningi og málnotkun í dönsku. Vefurinn er uppsettur sem púsluspil með fimm púslum sem hvert og eitt er gagnvirkur leikur. Bak við púsluspilið er mynd sem birtist smám saman eftir því sem nemandinn lýkur við leikina. Þegar nemandi hefur lokið við einn leik og náð 80% árangri snýst það púsluspil við og þá sést í myndina á bak við. Hugmyndin með þeirri útfærslu er að það verði hvatning fyrir nemendur að ljúka við sem flesta leiki til að sjá hvernig myndin lítur út.
"Få en god START og bliv rigtig SMART".
"Få en god START og bliv rigtig SMART".
Höfundar
Ásdís Lovísa Grétarsdóttir, Þórunn Erna Jessen, Halldór Baldursson, Þorsteinn Davíðsson, Bárður Arnar Bergsson
Skólastig
Miðstig
Vörunúmer
9974
Útgáfuár
2012