Unglingastig
Framhaldsskólastig
Samfélagsgreinar
Menntun til sjálfbærni
Handbók með kennsluáætlunum um lýðræðislega borgaravitund og mannréttindamenntun. Þessi bók er ætluð fyrir grunnskóla þar sem kennarar fá verkfæri til að flétta lýðræðislega borgaravitund inn í nám og daglegt skólastarf. Farið er yfir áskoranir, skilgreiningar og kennslufræði menntunar til sjálfbærni. Valdeflandi og umbreytandi nálganir eru í fyrirrúmi til að efla getu til aðgerða. Fræðin eru síðan tengd saman við raunverulegt skólastarf. Ýmsar útfærslur eru kynntar og hugmyndir að verkefnum með fjölbreyttum kennsluaðferðum settar fram. Til þess að efla mikilvæga grunnþekkingu sem tengjast markmiðum og umfangi menntunar til sjálfbærni er í seinni hluta bókarinnar fjallað um sjálfbæra þróun, loftslagsmál, líffræðilega fjölbreytni og aðgerðir sem mannkynið þarf að fara í. Bókin hvetur til gagnrýnna spurninga, svara og umræðna og valdeflir kennara við að þróa áfram menntun til sjálfbærni í skólastofunni með nemendur í brennidepli.
Höfundur
Guðrún Schmidt
Skólastig
Unglingastig Framhaldsskólastig
Vörunúmer
40719
Útgáfuár
2023