Fara á efnissvæði
Heil og sæl
Veldu útgáfu
Unglingastig
Framhaldsskólastig
Náttúrugreinar
Samfélagsgreinar

Heil og sæl

Þemaheftið „Heil og sæl“ fjallar um heilbrigði og heilbrigða lífshætti. Markmið þess er að hvetja unglinga til að vera meðvitaða um gildi heilbrigðra lífshátta og sýna hvernig eigin ákvarðanir geta haft afgerandi áhrif á líf þeirra. Jafnframt leggur heftið áherslu á að nemendur sjái hvernig grunnþættir menntunar mynda heild og starfa sem vegvísar um líf og starf í nútíma samfélagi. Þó heilbrigði sé í forgrunni tengist efnið öllum grunnþáttum menntunar og námsgreinum, svo sem lífsleikni, heimilisfræði, náttúrufræði og íþróttum. Við gerð heftisins var lögð áhersla á að tengja umfjöllunina fyrri þekkingu nemenda á heilbrigðum lífsháttum, þar á meðal hollu mataræði, líkamsstarfsemi og mikilvægi hreyfingar.

Höfundar

Hafdís Helgadóttir, Helgi Grímsson

Skólastig

Unglingastig Framhaldsskólastig

Vörunúmer

7430

Útgáfuár

2013

Lengd

24 bls.