Fara á efnissvæði
Kynþroskaárin
Veldu útgáfu
Unglingastig
Framhaldsskólastig
Samfélagsgreinar
Náttúrugreinar

Kynþroskaárin

Kennsluleiðbeiningar sem fylgja námsefninu Kynþroskaárin, sem er ætlað börnum og ungmennum með auknar stuðningsþarfir og þörf fyrir aðlagað námsefni. Efnið er samstarfsverkefni Ráðgjafar- og greiningarstöðvar og MMS sem sér um útgáfu þess, en höfundur er starfsmaður RGR. Kynþroski er tími mikilla breytinga þar sem bæði líkami og tilfinningar taka breytingum og samskipti við aðra þróast. Þetta getur verið krefjandi tímabil fyrir unglinginn og fjölskyldu hans, og því er mikilvægt að undirbúa börn vel fyrir unglingsárin. Með því að kenna snemma grundvallarhugtök um samskipti og kynverund verður lærdómurinn auðveldari, sérstaklega fyrir börn með þroskafrávik sem þurfa aðlagað námsefni.

Höfundar

Viktoría Buzukina, Hildigunnur Þráinsdóttir

Skólastig

Unglingastig Framhaldsskólastig

Vörunúmer

40740

Útgáfuár

2023