Fara á efnissvæði
Haust

Haustið

Haustið er tími breytinga. Dagarnir styttast, laufin skipta litum, farfuglar leggja af stað og veðrið tekur breytingum. Um leið færist skólastarfið í sinn daglega takt og ferðir í og úr skóla verða aftur hluti af hversdeginum. 

Þessi árstími býður upp á fjölbreytt tækifæri til náms, bæði innan og utan skólastofunnar. Nemendur geta fylgst með breytingum í náttúrunni, skoðað lauf, ber, fræ, sveppi, fugla og veður og velt fyrir sér hvaða áhrif árstíðaskiptin hafa á náttúruna og daglegt líf.

Styttri dagar og breytilegt veður gefa jafnframt tilefni til að beina sjónum að leiðinni í og úr skóla. Hvernig ferðumst við? Hvað þurfum við að hafa í huga þegar við göngum, hjólum eða ferðumst með öðrum? Og hvernig getum við stuðlað að öryggi okkar sjálfra og annarra?

Nærumhverfið getur þannig orðið að lifandi námsvettvangi þar sem náttúra, veður, umferð og daglegt líf mætast. 

Í umferðinni

Haustið er góður tími til að ræða umferðina og rifja upp hvernig við getum ferðast á öruggan og ábyrgan hátt, hvort sem við göngum, hjólum, förum á hlaupahjóli, tökum strætó eða ferðumst í bíl.

Umferðarfræðsla snýst ekki aðeins um að þekkja reglurnar heldur líka um að læra að lesa aðstæður, taka góðar ákvarðanir og sýna öðrum vegfarendum tillitssemi. Nærumhverfi skólans getur orðið að spennandi námsvettvangi þar sem nemendur skoða t.d. gönguleiðir, gangbrautir, umferðarmerki, lýsingu og aðstæður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.

Á vef Samgöngustofu má finna námsefni og hugmyndir að umferðarfræðslu. Umferðarfræðsla er lögbundin á Íslandi og gegnir mikilvægu hlutverki í að efla öryggi, ábyrgð og tillitssemi ungra vegfarenda.

Hér að neðan eru dæmi um námsefni sem tengjast þemanu:

Halloh Kapa 6296 Litil

Halló heimur 1 | Yngsta stig | Samfélags- og náttúrugreinar

Í kaflanum Árstíðir er fjallað um breytingar sem verða í náttúrunni eftir því sem hitastig og veður breytast. Nemendur fylgjast með og skrá veður, læra að lesa veðurtákn og ræða hvernig klæðnaður og daglegt líf tengjast veðri og árstíðum.

Fjölbreytt verkefni tengja náttúrufræði við sköpun, orðaforða og umræður, m.a. með veðurathugunum og verkefnum þar sem laufblöð eru nýtt til sköpunar.

Skoða nemendabók

Skoða verkefnabók

Skoða kennsluleiðbeiningar

Island.Her.Buum.Vid

Ísland hér búum við | Miðstig | Samfélagsgreinar

Í kaflanum Náttúra Íslands er fjallað um náttúru landsins, veður og árstíðirnar fjórar. Efnið gefur tilefni til að skoða hvað einkennir haustið á Íslandi og hvernig veður og árstíðir hafa áhrif á líf fólks og náttúru.

Skoða nemendabók 

Skoða verkefnabók

Skoða kennsluleiðbeiningar

Um.Vida.Verold

Um víða veröld - Jörðin | Unglingastig | Samfélagsgreinar

Í kaflanum Náttúra, gróður og loftslag jarðar má finna fjölbreytta umfjöllun sem tengja má árstíðum og þeim breytingum sem verða í náttúrunni þegar haustar.

Skoða nemendabók

Skoða kennsluleiðbeiningar

Tónlist Og Tíminn

Tónlist og tíminn | Yngsta stig | Tónmennt

Unnið er með íslensku lögin Sumri hallar, hausta fer og Haustlauf trjánna falla og breytingarnar sem verða í náttúrunni þegar sumri lýkur og haustið tekur við. Nemendur skoða orðaforða textanna og fá tækifæri til að leika sér með texta, söng og tónlist.

Skoða nemendabók

Skoða kennsluleiðbeiningar

Halloh Kapa 6296 Litil

Halló heimur 1 | Yngsta stig | Samfélags- og náttúrugreinar

Í kaflanum Umferðin er fjallað um börn sem þátttakendur í umferðinni og hvernig þau geta ferðast á öruggan hátt.

Skoða nemendabók

Skoða verkefnabók

Skoða kennsluleiðbeiningar

Ég Og Samfélagið

Ég og samfélagið | Miðstig | Samfélagsgreinar

Í kaflanum Úti að aka er fjallað um umferðarreglur, umferðarmerki, öryggisbúnað og ýmis önnur atriði sem tengjast því að vera í umferðinni hvort sem er sem gangandi vegfarandi, á reiðhjóli eða vélknúnum ökutækjum.

Skoða nemendabók

Á Ferð Og Flugi Í Umferðinni

Á ferð og flugi í umferðinni | Miðstig | Samfélagsgreinar

Námsefni sem fjallar um umferðaröryggi eins og notkun endurskinsmerkja og hvað ber að varast í snjó og hálku.

Skoða nemendabók

Skoða kennsluleiðbeiningar

Allir Spenntir

Allir spenntir | Unglingastig | Samfélagsgreinar

Efninu er ætlað að vekja unglinga til umhugsunar um umferð og umferðaröryggi. Fjallað er um umferðarmenningu, umferðarmerki, öryggisbúnað ökutækja, ábyrgð, akstursaðstæður og margt fleira. Fjölbreytt verkefni fylgja með sem gera ráð fyrir umræðum og margvíslegri úrvinnslu.

Skoða nemendabók

Skoða kennsluleiðbeiningar