Það er eitthvað alveg sérstakt við að byrja nýtt skólaár
Gangar skólans fyllast af glaðværum röddum, skólatöskum, spennu og tilhlökkun. Fram undan eru ný verkefni og áskoranir og tækifæri til að kynnast og finna sinn stað í hópnum. Fyrstu vikurnar eru kjörnar til að leggja grunn að jákvæðum bekkjaranda, góðum samskiptum og öryggi í skólastarfinu.
Hér eru dæmi um námsefni sem nýtist vel við skólabyrjun til að efla félagsfærni og samvinnu, ræða líðan og væntingar og koma góðum námsvenjum af stað.
Halló heimur 1 | Yngsta stig
Halló heimur 1 býður upp á fjölbreytt viðfangsefni sem henta vel við skólabyrjun. Þar má meðal annars ræða skólann, vináttu, samskipti og hvernig við tökum á móti nýjum bekkjarfélögum. Einnig má beina sjónum að árstíðunum og breytingunum sem verða þegar sumri hallar og haustið tekur við.
Ég og sjálfsmyndin | Miðstig
Ég og sjálfsmyndin gefur nemendum tækifæri til að skoða hver þau eru, hvað hefur áhrif á þau og hvaða hópum þau tilheyra. Fjallað er um sjálfsmynd, félagsmótun, samskipti, líðan og heilbrigði. Efnið gefur gott tilefni til samtala um fjölbreytileika, styrkleika hvers og eins og hvernig stuðla má að því að öllum líði vel í hópnum.
Félagsfærnifjör – hugmyndabanki | Yngsta og miðstig
Félagsfærnifjöri eru leikir, fræðsla og verkefni sem efla samskiptafærni, vináttu og sjálfsstjórn. Efnið hentar vel til að hjálpa nemendum að kynnast, æfa samvinnu og leggja grunn að góðum samskiptum og samheldnum hópi.
Léttir – leiklistarsmiðja | Öll aldursstig
Í Léttir eru fjölbreyttir leiklistar- og hópeflisleikir sem efla samvinnu, sjálfstraust, tjáningu og félagsfærni. Áhersla er lögð á þátttöku á forsendum hvers og eins og því hentar efnið vel til að hrista hópinn saman og skapa öruggt rými þar sem allir fá tækifæri til að vera með.
Bókin um Tíslu | Yngsta stig
Bókin um Tíslu fjallar um hugsanir, tilfinningar og aðstæður sem börn geta upplifað við upphaf skólagöngu og hvernig takast má á við breytingarnar á jákvæðan hátt. Efnið hjálpar nemendum að setja orð á líðan sína, hlusta á aðra og ræða hvað stuðlar að öryggi og vellíðan í hópnum.
Vitundin – stafræn borgaravitund | Öll aldursstig
Skólabyrjun er góður tími til að ræða samskipti og hegðun í stafrænum heimi. Vitundin fjallar meðal annars um stafrænt jafnvægi, friðhelgi, stafrænt fótspor, samskipti og neteinelti og getur nýst þegar móta á sameiginleg viðmið um stafræn samskipti í bekknum.
Handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum | Kennarahandbók
Handbókin er hagnýtt stuðningsefni fyrir starfsfólk grunnskóla um öryggi og velferð barna. Hún nýtist meðal annars við skipulag skólastarfs og þegar farið er yfir verklag og aðstæður í upphafi skólaárs.