Miðstig
Unglingastig
Trúarbragðafræði
Síkatrú
Myndaflokkurinn Trúarbrögð mannkyns fjallar um nokkur helstu trúarbrögð jarðarbúa. Í hverri mynd er sagt frá fjölskyldu og ýmsum siðum er tengjast trú hennar. Fléttað er inn upplýsingum um trúarbrögðin, svo sem um stofnanda trúarinnar og upphaf hennar, útbreiðslu, trúarskyldur, guðshús og helgistaði. Myndin fjallar um síkatrú, sem um 400 milljónir manna aðhyllast. Trúin á rætur að rekja til Indlands, en síkar búa einnig í stórum samfélögum víða á Vesturlöndum. Í myndinni fylgjum við síkastrák/stúlku á unglingsaldri á Vaisakhi-hátíðinni, helstu hátíð síka, og kynnumst litríkum siðum, musterum, helgiritum, sögu trúarinnar og helstu kenningum hennar.
Skólastig
Miðstig Unglingastig
Vörunúmer
45129
Útgáfuár
2010