Miðstig
Unglingastig
Trúarbragðafræði
Islam - Að lúta vilja guðs
Myndaflokkurinn Trúarbrögð mannkyns fjallar um nokkur helstu trúarbrögð jarðarbúa. Í hverri mynd er sagt frá fjölskyldu og ýmsum siðum er tengjast trú hennar. Fléttað er inn upplýsingum um trúarbrögðin, svo sem um stofnanda trúarinnar og upphaf hennar, útbreiðslu, trúarskyldur, guðshús og helgistaði. Myndin fjallar á einfaldan hátt um íslam. Fylgst er með Yousef Inga, sem býr í Breiðholtinu, og fjölskyldu hans á meðan þau fasta í Ramadan ásamt öðrum múslimum á Íslandi. Einnig er sýnd hátíðin Id al-Fitr sem haldin er í lok föstunnar. Um leið er sagt frá Múhameð og upphafi íslams, Kóraninum, útbreiðslu trúarinnar og áhrifum hennar á líf fólks á Vesturlöndum. Helstu kenningar trúarinnar eru útskýrðar, þar á meðal fimm stoðir íslams: trúarjátningin, bænin, ölmusan, fastan og pílagrímsferðin til Mekka.
Höfundur
Sigurður Ingi Ásgeirsson
Skólastig
Miðstig Unglingastig
Vörunúmer
45039
Útgáfuár
2003