Yngsta stig
Stærðfræði
Stærðfræðispæjarar 2
Stærðfræðispæjarar 2 er ítarefni í stærðfræði fyrir yngsta stig grunnskóla en nýtist einnig í fjölbreyttum nemendahópum. Bókin er framhald af Stærðfræðispæjurum 1 en má nota sjálfstætt. Hún skiptist í fimm kafla sem byggja á hæfniþáttum aðalnámskrár: tölum, rúmfræði, reikningi, mælingum, tölfræði og hnitakerfi, og styður jafnframt við þjálfun almennrar stærðfræðihæfni og lykilhæfni. Í bókinni eru notuð tákn fyrir verkefnagerðirnar „spæjarabók“ og „af borði á gólf“ og nánari útfærslur á þeim má finna í kennsluleiðbeiningum, sem skipta lykilmáli við notkun efnisins.
Höfundar
Bryndís Stefánsdóttir, Elín M Kristinsdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Bergrún Íris Sævarsdóttir
Skólastig
Yngsta stig
Vörunúmer
5581
Útgáfuár
2020
Lengd
56 bls.