Fara á efnissvæði
Sagan um Bólu 5
Veldu útgáfu
Yngsta stig
Íslenska

Sagan um Bólu 5

Sagan um Bólu 5 er æfingaefni í lestri fyrir byrjendur. Efnið skiptist í stutta sögu um köttinn Bólu sem prenta þarf út af vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og 10 lítil lestrarhefti sem byggjast á sögunni. Þetta er fimmta hefti af tíu.
Gert er ráð fyrir að í upphafi sé sagan lesin í heild fyrir nemenduren hver hluti svo rifjaður upp með þeim áður en þeir lesa heftin. Upprifjun úr sögunni er aftast í hverju hefti.
Með því að rifja söguna upp með barninu fær stuttur texti lestrarheftisins aukna merkingu í huga þess.
Lestrartextinn byggist á hljóðaaðferð og er lögð áhersla á tengsl bókstafs og hljóðs.
Einnig eru kenndar algengar orðmyndir. Í þessu hefti bætast bókstafirnir d, j og t og orðmyndin hjá við það sem fengist var við í fyrri heftum.

Höfundar

Hanna Kristín Þorgrímsdóttir, Ingi Jensson

Skólastig

Yngsta stig

Vörunúmer

7140

Útgáfuár

2012

Lengd

8 bls.