Yngsta stig
Íslenska
Sagan um Bólu 4
Sagan um Bólu 4 er æfingaefni í lestri fyrir byrjendur. Efnið skiptist í stutta sögu um köttinn Bólu sem prenta þarf út af vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og 10 lítil lestrarhefti sem byggjast á sögunni. Þetta er fjórða hefti af tíu.
Gert er ráð fyrir að í upphafi sé sagan lesin í heild fyrir nemendur en hver hluti svo rifjaður upp með þeim áður en þeir lesa heftin. Upprifjun úr sögunni er aftast í hverju hefti.
Með því að rifja söguna upp með barninu fær stuttur texti lestrarheftisins aukna merkingu í huga þess.
Lestrartextinn byggist á hljóðaaðferð og er lögð áhersla á tengsl bókstafs og hljóðs.
Einnig eru kenndar algengar orðmyndir. Í þessu hefti bætast við fyrri hefti bókstafirnir æ og h og orðmyndirnar ömmu, pabbi, öllu og vill.

Höfundar
Hanna Kristín Þorgrímsdóttir, Ingi Jensson
Skólastig
Yngsta stig
Vörunúmer
7139
Útgáfuár
2012
Lengd
8 bls.