Fara á efnissvæði
Frelsi og velferð - Saga 20. aldar
Veldu útgáfu
Unglingastig
Samfélagsgreinar

Frelsi og velferð - Saga 20. aldar

Kennsluleiðbeiningar, hugmyndir og verkefni með námsbókinni Frelsi og velferð. Bókin fjallar um sögu heimsins frá lokum síðari heimsstyrjaldar fram á síðustu ár. Bókin var fyrst þýdd úr norsku árið 2011 og aðlöguð að íslenskum aðstæðum, en síðar uppfærð árið 2019 með helstu atburðum tímabilsins 2011–2019. Í bókinni er meðal annars fjallað um stofnun Sameinuðu þjóðanna, kalda stríðið, átök í Vestur- og Mið-Asíu, sjálfstæði nýlendna, breytingar á landamærum Evrópu, loftslagsmál, stöðu flóttamanna, þróun hryðjuverkaógnar og stöðu Íslands í heimi samtímans.

Höfundur

Birna Björnsdóttir

Skólastig

Unglingastig

Vörunúmer

7123

Útgáfuár

2012