Yngsta stig
Íslenska
Safnverk
Lesrún - Lesa, skilja, læra
Lesrún - lesa, skilja, læra er einnota verkefnabók einkum ætluð nemendum í 3. og 4. bekk grunnskólans en gæti einnig hentað eldri nemendum þar á meðal nemendum með annað tungumál en íslensku. Gengið er út frá því að nemendur hafi náð vissri lestrarfærni áður en þeir takast á við Lesrúnu. Efnið er ýmiss konar fróðleikur, þjóðsögur, ævintýri og ljóð.
Í bókinni er fyrst og fremst lögð áhersla á lesturinn, lesfærni og lesskilning eins og fram kemur í undirtitli lesa, skilja, læra. Fá nemendur til að staldra við þegar lesið er, hugsa um efnið og velta því fyrir sér. Með því móti verður lestur bæði gagnlegur og skemmtilegur. Lögð er áhersla á að nemendur æfist í að nota skemu eða grindur til að auðvelda úrvinnslu, bæði munnlega og skriflega. Er þá átt við hugarkort, tímalínu, hv-spurningar og fleira.

Höfundar
Anna Þóra Jónsdóttir, Kristjana Pálsdóttir, Lára Garðarsdóttir
Skólastig
Yngsta stig Safnverk
Vörunúmer
7418
Útgáfuár
2014
Lengd
48 bls.