Yngsta stig
Náttúrugreinar
Samfélagsgreinar
Halló heimur 2
Bókin er 9 kaflar, 4 í náttúrugreinum og 5 í samfélagsgreinum. Kaflarnir eru Vatn, loft og hljóð, Líkami og sál, Fuglar og villt spendýr, Verum örugg, Landnám Íslands, Trú landnámsfólks, Hver er ég? og Einu sinni var. Í upphafi hvers kafla eru markmið hans sett fram ásamt fallegri opnumynd sem gefur innsýn í efni kaflans. Bókin er ríkulega myndskreytt með teikningum og ljósmyndum sem tengjast vel textanum. Á hverri opnu eru dregin fram 3 ný orð sem verðugt er að vinna með í tengslum við efnið til að auka orðaforða nemenda. Aftast í bókinni eru einfaldar útskýringar á orðunum. Hverjum kafla lýkur með hugmyndum að umræðum og verkefnum.
Höfundur
Iðunn Arna Björgvinsdóttir
Skólastig
Yngsta stig
Vörunúmer
6298
Útgáfuár
2022
Lengd
128 bls.