Orð eru ævintýri
Orð eru ævintýri er litrík myndaorðabók með yfir 1000 algengum íslenskum orðum þar sem myndir gegna lykilhlutverki. Hún hentar vel til að efla orðaforða barna í leikskólum og nemenda sem læra íslensku sem annað tungumál. Bókinni fylgir vefurinn Orðatorg og þar er: Rafbókarútgáfa af bókinni Orð eru ævintýri, hugmyndir að leiðum til að vinna með bókina, annars vegar fyrir leikskóla og hins vegar fyrir grunnskóla, með áherslu á íslensku sem annað tungumál. Tungumálavefur þar sem orðin úr bókinni eru þýdd á átta tungumál og lesin upp á íslensku. Gagnvirkir orðaleikir til að æfa notkun tungumálsins. Mynda- og orðaspjöld sem eru sérstaklega heppileg til talþjálfunar og að festa orðaforða í minni. Stór myndaspjöld. Leiðbeiningar með mynda- og orðaspjöldum sem og með stóru myndaspjöldunum.
Höfundar
Blær Guðmundsdóttir, Böðvar Leós, Elín Elísabet Einarsdóttir, Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson
Skólastig
Yngsta stig Leikskólastig
Vörunúmer
7232
Útgáfuár
2024