Fara á efnissvæði
Orð eru ævintýri
Veldu útgáfu
Leikskólastig
Yngsta stig
Íslenska

Orð eru ævintýri

Orð eru ævintýri er litrík myndaorðabók með yfir 1000 algengum íslenskum orðum þar sem myndir gegna lykilhlutverki. Hún hentar vel til að efla orðaforða barna í leikskólum og nemenda sem læra íslensku sem annað tungumál. Bókinni fylgir vefurinn Orðatorg og þar er: Rafbókarútgáfa af bókinni Orð eru ævintýri, hugmyndir að leiðum til að vinna með bókina, annars vegar fyrir leikskóla og hins vegar fyrir grunnskóla, með áherslu á íslensku sem annað tungumál. Tungumálavefur þar sem orðin úr bókinni eru þýdd á átta tungumál og lesin upp á íslensku. Gagnvirkir orðaleikir til að æfa notkun tungumálsins. Mynda- og orðaspjöld sem eru sérstaklega heppileg til talþjálfunar og að festa orðaforða í minni. Stór myndaspjöld. Leiðbeiningar með mynda- og orðaspjöldum sem og með stóru myndaspjöldunum.

Höfundar

Blær Guðmundsdóttir, Böðvar Leós, Elín Elísabet Einarsdóttir, Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson, Þorbjörg Halldórsdóttir

Skólastig

Leikskólastig Yngsta stig

Vörunúmer

40753

Útgáfuár

2024