Unglingastig
Samfélagsgreinar
Margt er um að velja
Margt er um að velja er námsefni í náms- og starfsfræðslu fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla. Efnið fjallar um atvinnulíf, störf, skólakerfið og sjálfsþekkingu og samanstendur af 19 verkefnablöðum ásamt kennsluleiðbeiningum. Markmiðið er að nemendur læri að velja nám og störf með rökum og fái aukinn skilning á menntakerfi og atvinnulífi. Námsefnið er í tveimur PDF-skjölum, annars vegar verkefnablöðum fyrir nemendur og hins vegar kennsluleiðbeiningum með tillögum að skipulagi kennslu. Verkefnin má bæði prenta út eða vinna rafrænt. Efnið var uppfært árið 2022 og þá var bætt við kennslumyndböndum sem styðja við efni kaflanna.
Höfundar
Berglind Melax, Högni Sigurþórsson
Skólastig
Unglingastig
Vörunúmer
40202
Útgáfuár
2019