Fara á efnissvæði
Kompás
Veldu útgáfu
Yngsta stig
Samfélagsgreinar

Kompás

Vefútgáfa Kompás er handbók um mannréttindafræðslu og -menntun, ætluð æskulýðsleiðtogum, kennurum og öðrum sem vinna með ungu fólki. Handbókin býður upp á raunhæfar hugmyndir og hagnýt verkefni sem virkja ungt fólk, efla jákvæða vitund um mannréttindi og hvetja til þátttöku í mannréttindastarfi í eigin samfélagi. Efnið spannar vítt svið mannréttinda með áherslu á jafnrétti og mannlega reisn og byggir á hugmyndum um reynslunám þar sem nemendur, umhverfi þeirra og eigin vangaveltur eru í forgrunni. Kompás var þróuð af þverfaglegu og þvermenningarlegu teymi og samin innan ramma mannréttindaáætlunar æskulýðs- og íþróttadeildar Evrópuráðsins frá árinu 2000. Markmið áætlunarinnar er að efla mannréttindafræðslu í æskulýðsstarfi og gera hana að hluta af almennri menntun. Handbókin er gefin út í samvinnu MMS og Mennta- og menningarmálaráðuneytisins með leyfi Evrópuráðsins.

Höfundar

Helga Jónsdóttir, Þórgunnur Skúladóttir

Skólastig

Yngsta stig

Vörunúmer

9995

Útgáfuár

2009