Fara á efnissvæði
Kári skoðar land og þjóð
Veldu útgáfu
Yngsta stig
Samfélagsgreinar

Kári skoðar land og þjóð

Sagan Kári skoðar land og þjóð er bakgrunnur nemendabókarinnar Komdu og skoðaðu land og þjóð. Sagan er til útprentunar á vefnum með Komdu og skoðaðu bókaflokknum en hér er hún lesin af Sigrúnu Eddu Björnsdóttur.
Sagan er um strákinn Kára sem á heima á Austurlandi en dvelur hjá afa sínum og ömmu í Reykjavík á meðan foreldrar hans fara til Indlands til að sækja litla kjördóttur, systur Kára. Kári er því ferðamaður í Reykjavík og rétt eins og aðrir ferðamenn á framandi svæðum kynnir hann sér áhugaverða staði og fólkið sem þar býr. Efninu er skipt í 12 afmarkaða hluta, jafnmarga opnunum í nemendabókinni. Á hverri opnu er efnið tengt fjölmörgum þekkingar- og skilningsatriðum og mælt er með því að vel sé farið yfir hverja opnu áður en byrjað er á næstu.

Höfundar

Sigrún Edda Björnsdóttir, Sigrún Helgadóttir

Skólastig

Yngsta stig

Vörunúmer

9983

Útgáfuár

2019