Fara á efnissvæði
Eitt líf
Veldu útgáfu
Unglingastig
Samfélagsgreinar

Eitt líf

Kennsluleiðbeiningarnar fylgja námsefninu Eitt líf sem samanstendur af dagbók og tíu hlaðvarpsþáttum. Um er að ræða efni í lífsleikni með forvarnargildi gegn áhættuhegðun. Farið er yfir ýmsa verndandi þætti með fræðslu, umræðum og verkefnum og er þessum leiðbeiningum ætlað að styðja við innlögn á efninu. Námsefnið beinir sjónum að alhliða heilsu einstaklinga og mikilvægi þess að stuðlað sé að verndandi þáttum í lífi ungmenna og þeim kennt að huga að andlegri og félagslegri heilsu sinni sem og líkamlegri. Námsefnið er samvinnuverkefni á milli MMS, RÚV og Minningarsjóðs Einars Darra (Eitt líf).

Höfundar

Hilja Guðmundsdóttir, Andrea Ýr Arnarsdóttir, Blær Guðmundsdóttir

Skólastig

Unglingastig

Vörunúmer

40712

Útgáfuár

2024