Miðstig
Enska
Yes we can 5
Yes We Can er heildstætt námsefni í ensku fyrir yngsta og miðstig grunnskóla. Því er ætlað að auka hæfni nemenda til að nota tungumálið sem lifandi verkfæri í fjölbreyttum tilgangi og við ólíkar aðstæður. Efnistök eru fyrst og fremst úr hversdagslífi nemenda og miða að því að víkka þekkingu og skilning á daglegu lífi og menningarheimi enskumælandi þjóða og hlutverki einstaklingsins í alþjóðasamfélagi. Áhersla er á samfelldan texta sem höfðar til nemenda og fjölbreytt verkefni sem byggja á textunum. Hlustun og málnotkun eru í fyrirrúmi en áhersla á lestur og ritun eykst markvisst eftir því sem líður á námið. Námsmat er hluti af námsefninu og áhersla er lögð á þátttöku nemenda í mati á eigin námsstöðu g aukinni meðvitund um eigin námsaðferðir og vinnulag. Yes we can samanstendur af: Yes we can 2–4: Verkefnabók, veggspjöld og flettispjöld í öskju. Yes we can 5–7: Nemendabók, verkefnabók, veggspjöld, flettispjöld í öskju og spil. Auk þess fylgir veigamikill vefur sem inniheldur hljóðbækur, hlustunaræfingar, gagnvirkar æfingar, heimanámstillögur og kennsluleiðbeiningar.
Skólastig
Miðstig
Vörunúmer
7224
Útgáfuár
2021
Lengd
88 bls.