Fara á efnissvæði
Sögulandið - Sjóræningjarnir eru komnir!
Veldu útgáfu
Miðstig
Íslenska

Sögulandið - Sjóræningjarnir eru komnir!

Sjóræningjarnir eru komnir! er þriðja bókin í bókaflokknum Sögulandið og leiðir lesandann inn í einn myrkasta kafla íslenskrar sögu.

Sagan segir frá Agli, ellefu ára dreng sem býr með fjölskyldu sinni í Vestmannaeyjum á 17. öld. Ógnin vofir yfir þegar fregnir berast af sjóræningjum og íbúar eyjanna búa sig undir hið versta. Þegar Tyrkjaránið skellur á fær Egill mikilvægt hlutverk – en hvernig á barn að takast á við grimma ribbalda þegar hann á jafnvel í vandræðum með að ráða við eina freka kind?

Í þessari spennandi og áhrifaríku sögu fá lesendur innsýn í líf barna á tímum ótta, óvissu og hörmunga. Sjóræningjarnir eru komnir! lýsir Tyrkjaráninu 1627 frá sjónarhorni barns og sameinar sögulegar staðreyndir og mannlega frásögn sem vekur fortíðina til lífsins.

Höfundar

Brynhildur Þórarinsdóttir, Bergrún Íris Sævarsdóttir, Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson

Skólastig

Miðstig

Vörunúmer

7119

Útgáfuár

2026

Lengd

102 bls.