Unglingastig
Saga
Sögueyjan 3
Sögueyjan 3 er Íslandssaga áranna 1900 - 2010 og er þriðja og síðasta bókin í bókaflokknum Sögueyjan. Ritröðinni er ætlað að spanna Íslandssöguna frá landnámi til ársins 2010. Meginmarkmið Sögueyjunnar 3 er að varpa ljósi á íslenskt samfélag frá aldamótum 1900 til okkar tíma. Annars vegar er gerð grein fyrir þróun íslensks samfélags í réttri tímaröð. Hins vegar eru tilteknir þættir samfélagsins teknir fyrir og þeir útskýrðir. Efnið er fléttað saman með þeim hætti að nemendur fái tilfinningu fyrir framvindu sögunnar um leið og þeir átti sig á samhengi tiltekinna samfélagsþátta. Aðalatriðið er að veita skýra innsýn í samfélag tímabilsins þar sem nemendur geta áttað sig á lífsskilyrðum almennings og ólíku hlutskipti landsmanna varðandi auð og völd.
Höfundar
Leifur Reynisson, Þórey Mjallhvít Ómarsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir
Skólastig
Unglingastig
Vörunúmer
2431
Útgáfuár
2011