Unglingastig
Saga
Sögueyjan 2
Sögueyjan 2 er Íslandssaga áranna 1520 – 1900 og er önnur bókin af þremur í bókaflokknum Sögueyjan. Ritröðinni er ætlað að spanna Íslandssöguna frá landnámi til ársins 2010. Meginmarkmið bókarinnar er að varpa ljósi á íslenskt samfélag frá siðaskiptum fram til loka 19. aldar. Annars vegar er gerð grein fyrir þróun íslensks samfélags í réttri tímaröð. Hins vegar eru tilteknir þættir samfélagsins teknir fyrir og þeir útskýrðir. Efnið er fléttað saman með þeim hætti að nemendur fái tilfinningu fyrir framvindu sögunnar um leið og þeir átti sig á samhengi tiltekinna samfélagsþátta. Aðalatriðið er að veita skýra innsýn í samfélag tímabilsins þar sem nemendur geta áttað sig á lífsskilyrðum almennings og ólíku hlutskipti landsmanna varðandi auð og völd.
Höfundar
Leifur Reynisson, Þórey Mjallhvít Ómarsdóttir, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Skólastig
Unglingastig
Vörunúmer
6203
Útgáfuár
2014
Lengd
93 bls.