Yngsta stig
Íslenska
Skrift 2b
Megináherslur í skriftarnámsefni á þrepi tvö eru að nemendur beiti réttum stafdrætti og tileinki sér réttar tengingar við ritun hálftengdrar ítalíuskriftar. Í þjálfuninni er tækifærið notað til að kynna fyrir nemendum ritun algengra orða og einfaldar reglur í réttritun. Í Skrift 2b, er lögð áhersla á að vinna áfram með tengingar í gegnum stafafjölskyldur en samhliða skriftarþjálfun eru stafsetningarreglur kynntar og æfðar auk þess sem nokkur verkefni hafa það að markmiði að samþætta skrift, stafsetningu og ritun. Í Skrift 2a, er kynning á stafafjölskyldum þar sem þær eru fyrst æfðar saman án tenginga en síðan eru tengingar kynntar og æfðar.
Höfundar
Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir, Ragnheiður Ásta Valgeirsdóttir
Skólastig
Yngsta stig
Vörunúmer
6856
Útgáfuár
2026
Lengd
68 bls.