Fara á efnissvæði
Skali 2A
Veldu útgáfu
Unglingastig
Stærðfræði

Skali 2A

Með námsefninu Skala leitast höfundar við að skapa nemendum tækifæri til að læra stærðfræði á fjölbreytilegan og uppbyggilegan hátt.
Námsefnið byggist bæði á samvinnunámi og einstaklingsmiðuðu námi. Höfundar telja að margbreytilegar aðferðir muni hvetja fleiri nemendur til virkrar þátttöku í eigin stærðfræðinámi.
Í Skala er lögð sérstök áhersla á þrjú atriði:
Að nemendur fáist við fjölbreytileg og hagnýt verkefni þar sem tækifæri gefst til að rannsaka og skapa.
Að nemendur öðlist sameiginlega námsreynslu sem feli jafnframt í sér einstaklingsmiðað nám.
Að grundvallarleikni og fagleg framvinda námsins séu höfð að leiðarljósi í samræmi við námskrá
Uppbygging námsefnisins, þar sem skiptast á fjölbreytileg og ólík verkefni annars vegar og æfingar í staðreyndaþekkingu og leikni hins vegar draga vel fram tengslin milli faglegs skilnings, leikni í faginu og notkunar þess. Verkefnin auka skilning nemenda á helstu náms- þáttum, sem kaflarnir fjalla um, og jafnframt upplifa nemendur að þeir geta notað stærðfræðilega þekkingu sína og leikni í daglegu lífi.

Höfundar

Hanna Kristín Stefánsdóttir, Bjørnar Alseth, Grete Normann Tofteberg, Invgvill Metete Stedöy-Johansen, Janneke Tangen

Skólastig

Unglingastig

Vörunúmer

7380

Útgáfuár

2015