Unglingastig
Íslenska
Rómeó og Júlía
Rómeó og Júlía tilheyrir flokki endursagna á þekktum skáldsögum. Hver saga er 55 bls. auk viðauka þar sem farið er í bakgrunn sögunnar. Rómeó Montag telur sér trú um að hann sé ástfanginn, þar til hann sér Júlíu Kapúlettsdóttur. Þá fyrst uppgötvar hann raunverulega ást. En fjölskyldur þeirra eru svarnir óvinir, svo þau verða að halda ást sinni leyndri. Þegar Rómeó fellir frænda Júlíu í einvígi virðist öll von úti um að elskendurnir ungu geti nokkurn tíma notið hamingjunnar. Séra Lárens gerir hvað hann getur til að koma á sáttum milli fjölskyldna þeirra en ráðagerðir hans hafa hörmulegri afleiðingar en nokkurn gat grunað. Bókin er sett upp með leikritaformi og hentar vel til samlestrar.
Höfundar
Friðrik Erlingsson, Charly Cheung, Helen Street, William Shakespeare
Skólastig
Unglingastig
Vörunúmer
7069
Útgáfuár
2011
Lengd
64 bls.