Fara á efnissvæði

Nýr námsefnisvefur MMS er í þróun og við hvetjum notendur til að senda okkur ábendingar sem hjálpa okkur að bæta hann. Eldri námsefnisvef hefur verið lokað af öryggisástæðum.

Út úr skugganum - inn í dagsljósið
Veldu útgáfu
Íslenska
Saga

Út úr skugganum - inn í dagsljósið

Í þessari bók eru sagðar sögur kvenna frá upphafi Íslandsbyggðar og fram á 19. öld. Hún varpar ljósi á líf þeirra og störf á tímum þegar raddir kvenna fengu sjaldan hljómgrunn í sagnaritun. Konur sinntu fjölbreyttum og lífsnauðsynlegum verkefnum, sumum sem þekkjast enn í dag og öðrum sem hafa horfið með breyttum tímum. Þær héldu heimilum gangandi, kenndu börnum að lesa, hjúkruðu sjúkum, tóku á móti börnum, sóttu sjóinn og sinntu störfum sem voru samfélaginu ekki síður mikilvæg en þau sem karlar höfðu á sinni könnu.

Bókin dregur fram þann hluta sögunnar sem oft hefur farið fram hjá okkur – sögu kvenna sem lifðu, störfuðu og lögðu sitt af mörkum löngu áður en konur fengu tækifæri til formlegrar menntunar eða til að gegna opinberum embættum.

Aftast í bókinni má finna kennsluhugmyndir og verkefni.

Höfundur

Guðrún Ingólfsdóttir

Myndhöfundur

Linn Janssen

Skólastig

Miðstig

Vörunúmer

40370

Útgáfuár

2026

Lengd

66 bls.