Fara á efnissvæði
Að heiman og heim - Viðsnúningur
Veldu útgáfu
Íslenska

Að heiman og heim - Viðsnúningur

Breytist vinátta þegar lífið tekur óvænta stefnu?

Kría og Sóley hafa alltaf verið óaðskiljanlegar, sannkallaðar samlokur. Þegar Kría flytur með fjölskyldu sinni til Englands reynir á vináttuna. Á meðan Kría kynnist nýju landi, nýju fólki og nýjum venjum þarf Sóley að læra að fóta sig án hennar. Þegar Kría snýr aftur heim til Íslands hefur margt breyst hjá þeim báðum.

Sagan fjallar á næman og aðgengilegan hátt um aðskilnað, heimkomu, misskilning, vináttu og tilfinningar sem mörg kannast við. Í gegnum söguna eru lesendur hvattir til að velta fyrir sér eigin reynslu, samskiptum og því hvernig vinátta getur breyst og þroskast með tímanum.

Höfundar

Karítas Hrundar Pálsdóttir, Arnar Þór Kristjánsson

Skólastig

Miðstig Unglingastig

Vörunúmer

7257

Útgáfuár

2026