Fara á efnissvæði
Náttúrulega 1
Veldu útgáfu
Miðstig
Náttúrugreinar

Náttúrulega 1

Náttúrulega 1 verkefnabók fylgir námsefninu Náttúrulega 1. Náttúrulega 1 er fyrsti hluti af þremur í bókaflokknum sem samanstendur af nemendabók, verkefnabók, kennsluleiðbeiningum, gagnvirkum spurningum, námsmatsbanki og fleira.


Bókin samanstendur af fimm köflum sem hver fjallar um undirgrein náttúrugreina.
Fyrsti kaflinn ber heitið Flóra og fána og fjallar um líf á jörðinni og grunneiningar lífs og flokkun þess.
Annar kafli ber heitið Sjáðu líkamann minn. Hann fjallar um nokkur af líffærakerfum mannslíkamans, stoðkerfi, öndunarkerfi og blóðrásarkerfið og fjallar auk þess um sjónina og ljós.
Þriðji kafli heitir Tækni og nýsköpun. Hann fjallar um þá þróun sem orðið hefur á tækni og hvernig hægt er að skapa nýja hluti og hugmyndir.
Fjórði kafli heitir Það skiptast á skin og skúrir. Hann fjallar um lofthjúp jarðar og veðrakerfið.
Fimmti og síðasti kafli heitir Út um mela og móa. Sá kafli fjallar um gróðurlendi á Íslandi og íslenska náttúru.
Ýmis verkefni er að finna í verkefnabókinni en sérstök áhersla er lögð á hugtakaskilning og verklegar athuganir og tilraunir.

Höfundar

Halldóra Lind Guðlaugsdóttir, Ragnheiður Alma Snæbjörnsdóttir, Telma Ýr Birgisdóttir, Sandra Rós Björnsdóttir

Skólastig

Miðstig

Vörunúmer

5903

Útgáfuár

2021

Lengd

80 bls.