Miðstig
Náttúrugreinar
Náttúrulega 1
Verkefnabók með Náttúrulega 1. Í bókaflokknum er fjallað um allar undirgreinar náttúrugreina.
Bókin samanstendur af fimm köflum sem hver fjallar um undirgrein náttúrugreina.
- Fyrsti kaflinn ber heitið Flóra og fána og fjallar um líf á jörðinni og grunneiningar lífs og flokkun þess.
- Annar kafli ber heitið Sjáðu líkamann minn. Hann fjallar um nokkur af líffærakerfum mannslíkamans, stoðkerfi, öndunarkerfi og blóðrásarkerfið og fjallar auk þess um sjónina og ljós.
- Þriðji kafli heitir Tækni og nýsköpun. Hann fjallar um þá þróun sem orðið hefur á tækni og hvernig hægt er að skapa nýja hluti og hugmyndir.
- Fjórði kafli heitir Það skiptast á skin og skúrir. Hann fjallar um lofthjúp jarðar og veðrakerfið.
- Fimmti og síðasti kafli heitir Út um mela og móa. Sá kafli fjallar um gróðurlendi á Íslandi og íslenska náttúru.
Höfundar
Halldóra Lind Guðlaugsdóttir, Krumla, Ragnheiður Alma Snæbjörnsdóttir, Telma Ýr Birgisdóttir
Skólastig
Miðstig
Vörunúmer
2909
Útgáfuár
2023