Fara á efnissvæði
Mannslíkaminn - Litróf náttúrunnar
Veldu útgáfu
Unglingastig
Líffræði

Mannslíkaminn - Litróf náttúrunnar

Verkefni til útprentunar með bókinni Mannslíkaminn sem tekur lesendur í spennandi ferðalag inn í einn flóknasta og magnaðasta „vélbúnað“ sem til er – okkur sjálf! Hér er kafað ofan í leyndardóma líkamans, allt frá örsmáum frumum upp í stór og samstillt líffærakerfi sem vinna saman allan sólarhringinn. Lesendur kynnast því hvernig heilinn stýrir líkamanum, hvernig hjartað slær og hvernig skynfærin hjálpa okkur að upplifa heiminn í kringum okkur.
Á leiðinni er líka stoppað við áhugaverð og stundum krefjandi viðfangsefni, eins og breytingar á unglingsárum, heilsu og áhrif lífsstíls á líkamann. Þá er einnig varpað ljósi á hvernig ýmis efni geta haft áhrif á líkamann, bæði jákvæð og neikvæð. Bókin vekur forvitni og fær lesendur til að hugsa: Hvernig virkar ég eiginlega – og hvernig get ég hugsað betur um líkamann minn?

Höfundar

Þuríður Þorbjarnardóttir, Ingi Jensson, Ingimar Waage, Jón Baldur Hlíðberg, Susanne Fabricius

Skólastig

Unglingastig

Vörunúmer

9932

Útgáfuár

2011