Fara á efnissvæði
Listin að lesa og skrifa 2 - Ári og Óri
Veldu útgáfu
Yngsta stig
Íslenska

Listin að lesa og skrifa 2 - Ári og Óri

Ari og Óri er í örbókaflokki sem er hluti af lestrarkennsluefninu Listin að lesa og skrifa. Í bókinni eru aðeins æfðir bókstafirnir í, ó, s, á, l, a, i og r ásamt orðmyndunum og og ekki.
Lestrarkennsluefnið Listin að lesa og skrifa er ætlað byrjendum í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð. Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu. Allur texti er án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili. Efnið skiptist í fjórar vinnubækur, 24 lestrarbækur, örbækur, lesspil, kennsluleiðbeiningar, verkefni á vef o.fl.
Örbækurnar eru léttustu bækurnar í flokknum Listin að lesa og skrifa og ætlaðar þeim börnum sem þurfa mjög mikla endurtekningu og texta með stuttum orðum á meðan þau eru að ná tökum á lestrarnáminu.

Höfundar

Arnheiður Borg, Sigrún Löve, Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir

Skólastig

Yngsta stig

Vörunúmer

6061

Útgáfuár

2005

Lengd

8 bls.