Fara á efnissvæði
Listin að lesa og skrifa 14a - Alex og rex
Veldu útgáfu
Yngsta stig
Íslenska

Listin að lesa og skrifa 14a - Alex og rex

Í bókinni Alex og Rex eru bókstafirnir ei, ey, p og x sérstaklega æfðir. Efnið er á þyngdarstigi 1 og er hluti af lestrarkennsluefninu Listin að lesa og skrifa. Bókin er nr. 14a í röð 42 lítilla lestrarbóka. Efnið skiptist í fjórar vinnubækur, litlar lestrarbækur, örbækur, lestrarspil, kennsluleiðbeiningar og verkefni á vef.
Lestrarkennsluefnið Listin að lesa og skrifa er fyrir byrjendur í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð. Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu. Textinn er að mestu án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili.

Höfundar

Arnheiður Borg, Sigrún Löve, Bergrún Íris Sævarsdóttir

Skólastig

Yngsta stig

Vörunúmer

5054

Útgáfuár

2018

Lengd

8 bls.