Náttúrugreinar
Samfélagsgreinar
Komdu og skoðaðu eldhúsið
Komdu og skoðaðu flokkurinn samanstendur af 15 myndrænum nemendabókum. Hver bók fjallar um ákveðið viðfangsefni og veitir nemendum innsýn í náttúru, samfélag, tækni og sögu. Í bókinni Komdu og skoðaðu eldhúsið er lögð áhersla á viðfangsefni sem tengjast hráefnum og áhöldum í eldhúsi. Gerð er grein fyrir áhrifum hitunar, kælingar og blöndunar algengra efna og eiginleikar þeirra skoðaðir. Skoðaður er húsakostur og tækni sem nýtt er í nútíma eldhúsum og gerð grein fyrir breytingum frá fyrri tímum.
Höfundar
Gunnhildur Óskarsdóttir, Ragnheiður Hermannsdóttir
Myndhöfundur
Jean Posocco
Upplestur
Halla Margrét Jóhannesdóttir
Skólastig
Yngsta stig
Vörunúmer
40001
Útgáfuár
2014
Lengd
24 bls.