Miðstig
Hönnun og smíði
Verkefni í hönnun og smíði fyrir 5.–7. bekk
Í verkefnabankanum eru 30 verkefni í hönnun og smíði fyrir nemendur í 5.–7. bekk. Verkefnin eru á mismunandi þyngdarstigi og má aðlaga þau að aldri, þroska og getu nemenda. Öll verkefnin hafa verið prófuð í kennslu og í verkferlalýsingum er bent á atriði sem mikilvægt er að hafa í huga. Þótt tiltekin smíðaefni séu nefnd í hverju verkefni er auðvelt að breyta efniviði eftir aðstæðum í hverjum skóla. Efnisval er fjölbreytt og byggir meðal annars á efniviði úr umhverfinu, með áherslu á endurnýtingu og skapandi notkun á gömlum efnivið.
Höfundar
Eygló Ragnheiður Sigurðardóttir, Eygló Ragnheiður Sigurðardóttir
Skólastig
Miðstig
Vörunúmer
40609
Útgáfuár
2014