Yngsta stig
Tónmennt
Tónlist og Afríka
Hér má finna hljóðefni fyrir námsefnis Tónlist og Afríka.
Í þessari bók kynnast nemendur tónlist frá Afríku. Þeir hlusta á afríska tónlist, læra afrísk lög, syngja og dansa.
Í bókinni er kynning á afrískum hljóðfærum og því hvernig á að búa til slík hljóðfæri. Efnið er einkum ætlað nemendum í 3.– 4. bekk þótt vissir hlutar þess henti einnig bæði yngri og eldri nemendum. Þetta er fyrsta bókin í flokki þemabóka í tónmennt fyrir yngsta stig grunnskólans. Efnið samanstendur af nemendabók, kennarabók og hlustunarefni á geisladiski og inni á læstu svæði kennara.
Höfundar
Helga Vilborg Sigurjónsdóttir, Ólafur Schram, Pétur Atli Lárusson
Skólastig
Yngsta stig
Vörunúmer
2434
Útgáfuár
2014