Fara á efnissvæði
Tákn með tali
Veldu útgáfu
Yngsta stig
Miðstig
Unglingastig
Íslenskt táknmál

Tákn með tali

Tákn með tali (TMT) er tjáskiptaaðferð sem notuð er með einstaklingum með mál- og talörðugleika. Aðferðin byggir á einföldum hreyfitáknum sem notuð eru markvisst til stuðnings töluðu máli.
TMT-forritið er ætlað fagfólki og öðrum sem nota Tákn með tali í starfi með skjólstæðingum. Forritið auðveldar þá vinnu sem fylgir gerð náms- og kennsluefnis og inniheldur yfir 1000 táknmyndir og 3005 orð. Orðaforðinn byggir á orðabókinni Tákn með tali, sem gefin er út af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Á vefnum má nálgast leiðbeiningar um forritið, uppsetningu og notkun, hlaða niður sjálfu forritinu og einnig sækja .zip-skrá með öllum táknmyndunum.

Höfundar

Björk Alfreðsdóttir, Sigrún Grendal, Sigurborg I. Sigurðardóttir

Skólastig

Yngsta stig Miðstig Unglingastig

Vörunúmer

8090

Útgáfuár

2015