Fara á efnissvæði
Lúkas lesmús
Veldu útgáfu
Yngsta stig
Íslenska

Lúkas lesmús

Bókin fjallar um músina Lúkas sem bjargar lífi sínu með því að kunna að lesa.

Sagan birtist á þremur tungumálum: íslensku, ensku og pólsku. Á hverri síðu eru spurningar úr efni sögunnar, ályktun og forspá. Aftast í bókinni eru orðskýringar og verkefni. Efnið býður upp á fjölbreytta úrvinnslu þar sem áhersla er lögð á umræður, ritun, lesskilning og orðaforða.

Bókin býður upp á brú milli skóla og heimila, t.d. gæti tvítyngdur nemandi með pólskt bakland lesið íslenska textann í skólanum en deilt sögunni heima á pólsku. Þannig auðveldar bókin samvinnu heimilis og skóla og styður við læsi barna – hvort sem þau hafa íslensku, ensku eða pólsku að móðurmáli. Einnig geta íslenskumælandi börn spreytt sig á ensku eða pólsku og þannig lært að sjá tungumál sem tækifæri til samskipta og skilnings.

Höfundar

Brynhildur Stefánsdóttir, Brynhildur Stefánsdóttir

Skólastig

Yngsta stig

Vörunúmer

40372

Útgáfuár

2026