Yngsta stig
Miðstig
Unglingastig
List- og verkgreinar
Kveikjur fyrir skapandi skólastarf - Sjónræn rannsóknarvinna
Námsefnið samanstendur af kveikjum, sem eru hugmyndir fyrir rannsókn, dýpkun, úrvinnslu, faglegt samhengi og umræður. Hægt er að setja kveikjurnar í samhengi við fjölbreytt viðfangsefni, á getustigi og áhugasviði hvers og eins. Tilgangur þess að nota kveikjur í skólastarfi er fyrst og fremst til að vekja áhuga nemenda á hugmyndavinnu og sjálfstæðri sköpun auk þess að gera þau forvitin um viðfangsefnið.
Með því að rannsaka hvernig aðrir listamenn og hönnuðir hafa unnið með viðfangsefnið er það sett í faglegt samhengi og dýpkar um leið skilning á verkefnunum. Æskilegt er að nemendur finni dæmi út frá eigin áhuga og kynni hvert fyrir öðru. Verkefnin skiptast í línur, form, liti og áferð en þeir flokkar skarast allir. Þessi flokkun er sett fram til einföldunar og eiga flest verkefnin heima í fleiri en einum flokki.

Höfundar
Vigdís Hlíf Sigurðardóttir, Vigdís Hlíf Sigurðardóttir
Skólastig
Yngsta stig Miðstig Unglingastig
Vörunúmer
40164
Útgáfuár
2018