Miðstig
Unglingastig
Framhaldsskólastig
Samfélagsgreinar
Hvað heldur þú?
Námsefnið er ætlað að skapa vettvang þar sem nemendur og kennarar stunda gagnrýna hugsun. Það kynnir verkfæri sem styðja slíka vinnu, en árangurinn ræðst af því að kennarar gefi rými fyrir opna umræðu og ígrundun. Gagnrýnin hugsun snýst ekki aðeins um rökhugsun og hugarþrautir, heldur einnig um hugarfar. Verkefnin í Hvað heldur þú? eru byggð upp þannig að nemendur þrói smám saman opnara hugarfar, dýpri hugsun og sterkari rökleikni. Áhersla er lögð á gagnrýna og skapandi hugsun í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla. Nemendur eru hvattir til að vera virkir í námi sínu, leita svara í samræðu við aðra og vinna í gagnrýnu og lýðræðislegu samfélagi sem stuðlar að læsi, sköpun og velferð.
Höfundar
Brynhildur Sigurðardóttir, Ingimar Waage
Skólastig
Miðstig Unglingastig Framhaldsskólastig
Vörunúmer
40056
Útgáfuár
2015